Preview
Description
Öll íslensku málhljóðin eru kennd á lifandi og skemmtilegan hátt með fyrirmynd fyrir hvert og eitt hljóð. Heiti bókstafanna og hljóð þeirra eru kennd með íslenska fingrastafrófinu um leið og lestrarferlið er undirbúið. Á sama tíma er réttur framburður hljóða kenndur. Aðferðin byggir á áratuga reynslu talmeinafræðings með áherslu á að veita aðgengilega og faglega leiðsögn til foreldra og skóla. Smáforritið er ætlað öllum barnafjölskyldum og fagfólki sem vilja veita börnum forskot á hljóðmyndun og undirbúa þau fyrir lestur. Tilvalið fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að æfa og læra íslensku hljóðin. Rannsóknir sýna marktækan mun á árangri nemenda í 1. bekk í hljóðkerfisvitund og bókstafaþekkingu auk betri getu í heildina á orðaforða þegar skipulega var unnið með Lærum og leikum með hljóðin og Froskaleiki 1,2,3 á leikskólaaldri og í 1. bekk (Gudmundsdottir, 2014. Ævarsdóttir, 2016). Smáforritin Kids Sound Lab PRO og Frog games sem byggja á íslensku forritunum hafa fengið fjölda erlendra viðurkenninga hjá fagaðilum og foreldrum. Árið 2016 var Kids Sound Lab valið eitt af sex bestu forritum í menntun á heimsvísu af BETT. Frá 2017 hafa forrit Raddlistar fengið 5 stjörnu gjöf og viðurkenningu hjá fagnefnd Educational App Store með afar lofsamlegum umsögnum. Smáforritið, Lærum og leikum með hljóðin, tekur mið af því í hvaða röð íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni og hvernig auðveldast er að kenna hljóðin. Byrja má skipulega á auðveldari hljóðum sem koma fyrir hjá mjög ungum börnum og halda áfram yfir í þau hljóð sem erfiðara er að segja eða velja það hljóð sem æfa þarf sérstaklega hverju sinni. Lærum og leikum með hljóðin er notað víða í leik- og grunnskólum á Íslandi og er sýnt í barnaefni Stöðvar 2 og um allan heim í Hopster appi Vodafone. Efnistök forritsins byggja á samnefndum bókum og námsefni Bryndísar Guðmundsdóttur talmeinafræðings. Lærum og leikum með hljóðin inniheldur: - Talsetning/söngur Felix Bergsson og Védís Hervör Árnadóttir - Íslenskar teikningar Búa Kristjánssonar og Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur - 20 samhljóð í íslensku kynnt með táknmynd fyrir hljóðið - Sérhljóð í íslensku kynnt sérstaklega - Röð samhljóða fylgir sömu röð og íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni - Hægt er að velja í aðalvalmynd hvaða hljóð er valið hverju sinni ef ekki er stuðst við erfiðleikaröðina - Hægt er að fá lýsingu á talfærastöðu fyrir hvert hljóð - Öll hljóðin eru æfð í hljóðaleik með hljóðakeðjum; samhljóð með sérhljóði til að tryggja að barnið nái réttu hljóði - Hljóðtenging er æfð til að undirbúa læsi og styrkja framburð málhljóðanna - Hljóðin æfð í framstöðu orða nema þau hljóð sem koma eingöngu fyrir í miðju og aftast í orðum - Ð, NG og ,,mjúka” G, eru æfð aftast og í miðju orða - R býður upp á meiri aðlögun og fleiri orð í framstöðu orða til að æfa (algengt að börn eigi erfitt með framburð R- hljóðsins) - Fjórir gagnvirkir leikir auk orðforðaaæfinga með þjálfun setninga - Hrós veitt reglulega í forritinu - Upptaka leyfð á orðum og setningum til að æfa og hlusta en vistast ekki í snjalltækinu - Foreldravörn aukin -Skráning nemenda: nafn, aldur. Engar myndir vistast í tækjum og eða fara í sendingu - Stigagjöf inni í forritinu - Árangur sýndur í % - Skráning athugasemda inni í forritinu - Upplýsingar um stöðu og athugasemdir má senda í netpósti. Engar myndir áframsendar. - Hægt er að prenta út samantekt niðurstaða (air print). Engar myndir fara í prentun gagna - Vistun og sending minnir á verndun gagna m.t.t. Persónuverndar - Engar auglýsingar Mennta- og barnamálaráðuneytið, Þróunarsjóður námsgagna og Uppbyggingarsjóður Suðurnesja styrktu nýja útgáfu Lærum og leikum með hljóðin frá grunni í opna útgáfu iOs og vefútgáfu. Við þökkum tölvunarfræðideild HR og Therapy Box fyrir samstarfið. Frekari upplýsingar: http.www.youtube/laerumogleikum www. laerumogleikum.is
What's New
Version 3.0 2024-09-20
Appið hefur verið grunnkóðað frá grunni í nýtt kerfi sem bætir virkni. Nýr hljóðtengileikur sem undirbýr læsi og réttan framburð hefur verið þróaður í appið með... Technical Analysis
Package Overview Package analysis available
Bundle ID
com.kidssoundlab.playandlearnicelandicpro Current Version 3.0
Minimum iOS 13.4
Package Size App Store Size
Package Metadata 2 / 11 version records
hermes
dev.hermesengine.iphoneos v0.12.0iOS 13.4+4.34 MB
Developer Information
Known Version Records
2 version records with stored package metadata • 11 known version records
Stored metadata does not guarantee a package is currently available to download.
| Details | Version / IDs | Version date | Action |
|---|---|---|---|
| 150.28 MB | v2.7.1 App Store ID: 869054328Build: 13 | 2024-09-11 11:21:52 | Get Version |
| Not archived | App Store ID: 841437341 | Unknown | Request Version |
| Not archived | App Store ID: 819591175 | Unknown | Request Version |
| Not archived | App Store ID: 815246913 | Unknown | Request Version |
| Not archived | App Store ID: 813740315 | Unknown | Request Version |
| Not archived | App Store ID: 812529207 | Unknown | Request Version |
| Not archived | App Store ID: 811831757 | Unknown | Request Version |
| Not archived | App Store ID: 810955674 | Unknown | Request Version |
| Not archived | App Store ID: 85472660 | Unknown | Request Version |
| Not archived | App Store ID: 16133005 | Unknown | Request Version |
| 110.29 MB | v0.99 App Store ID: 15721232Build: 20 | 2013-08-03 00:39:22 | Get Version |